Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 28. október 2026 Prenta

Fréttatilkynning 28. október 2026

Brynja og Einar Már.
Brynja og Einar Már.

Sparisjóðirnir efla áhættustýringu og stafræna þróunSparisjóðirnir efla áhættustýringu og stafræna þróun

Sparisjóðirnir hafa ráðið Einar Má Hólmsteinsson sem sameiginlegan áhættustjóra og Brynju Pálínu Sigurgeirsdóttur sem verkefnastjóra viðskiptaþróunar og stafrænna lausna hjá SÍSP. Með ráðningunum er verið að styrkja enn frekar sameiginlega starfsemi sparisjóðanna á sviði áhættustýringar, viðskiptaþróunar og stafrænna lausna.

Einar Már hefur rúmlega 20 ára reynslu úr fjármála- og tæknigeiranum. Síðastliðin 15 ár starfaði hann hjá Íslenskum verðbréfum, þar sem hann gegndi stöðu forstöðumanns áhættustýringar. Þar áður starfaði hann meðal annars við áhættustýringu hjá Saga fjárfestingarbanka og við hugbúnaðarþróun hjá Íslandsbanka, Glitni og Tölvumyndum.

Brynja Pálína er tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í stjórnun frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur fjölbreytta reynslu af hugbúnaðarþróun, gæðastjórnun og rekstri og hefur meðal annars starfað við hugbúnaðarþróun og innleiðingu Dynamics-lausna hjá Rue de Net, Annata og M7, auk þess að hafa sinnt gæðastjórnun hjá Five Degrees.

Ráðningarnar eru liður í áframhaldandi uppbyggingu og eflingu sameiginlegrar starfsemi sparisjóðanna.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Brynju og Einar.

Sparisjóðirnir eru þrír talsins: Sparisjóður Austurlands, Sparisjóður Þingeyinga og Smári Sparisjóður.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Tómas Axelsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða (SÍSP) í síma 8639941.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Október »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Úr myndasafni

  • Brot úr jaka í fjörinni.18-12-2010.
  • Ágúst Guðjónsson sér um blöndunina..06-09-08.
  • Borgarísjaki með tvo tinda er NNV við Reykjaneshyrnu ca 18 KM frá landi.26-08-2018.
  • Grásteinn(Grænlandssteinn) í landi Stóru-Ávíkur 05-02-2005.
  • Munaðarnes 15-03-2005.
Vefumsjón