Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 12. desember 2019 Prenta

Staðan á Vestfjörðum kl 14:00 12.12.2019.

Frá Norðurfirði í dag.
Frá Norðurfirði í dag.

Tilkynning frá Orkubúi Vestfjarða.

Rafmagn er komið frá byggðalínunni og er Vesturlína komin í rekstur. Breiðadalslína 1 er enn biluð og er varaflsstöðin í Bolungarvík því keyrð áfram. Viðgerðarflokkur er lagður af stað í línuskoðun. Varaaflskeyrslu hefur verið hætt á Hólmavík og á Reykhólum. Hólmavíkurlína hefur leyst út tvisvar í dag en hún hefur verið sett inn jafnharðan. Rafmagn er komið á Króksfjarðarnes og Gilsfjörð og á allt norðan Þorskafjarðar eftir því sem best er vitað. Rafmagn er komið á frá Hrútatungu og að Broddanesi eftir að gert var við Borðeyralínu. Rafmagn er komið á Árneshrepp að Trékyllisvík en enn er verið að reyna að koma rafmagni á Norðurfjörð. Unnið er að viðgerð á Rauðasandslínu á Hænuvíkurhálsi og áætlað er að henni ljúki seinna í dag. Rafmagn fór af Patreksfirði og Barðaströnd fyrr í dag í um 30 mínútur vegna bilunar í rafstöðinni á Patreksfirði við varaaflskeyrslu.

Rafmagn fór fljótlega af Norðurfirði eftir að hún komst fyrst inn um kl. 11:00 og er verið að hreinsa línur og spenna af heimamönnum.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Október »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Úr myndasafni

  • Brot úr jaka í fjörinni.18-12-2010.
  • Stakur borgarísjaki 3. KM NA af Reykjaneshyrnu. 02-01-2018.
  • Inni lokað loftrúm.12-11-08.
  • Litla-Ávík og Stóra-Ávík.Séð af Reykjaneshyrnu.Mynd Jóhann.
  • Úr svefnherbergisálmu.02-02-2009.
  • Náð í einn flotann.
Vefumsjón