Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 18. mars 2022 Prenta

Ómskoðun.

Guðbrandur við ómskoðun.
Guðbrandur við ómskoðun.
1 af 2

Guðbrandur Þorkelsson bóndi á Skörðum Dalasýslu kom norður seint í dag þegar vegur opnaðist til að Ómskoða og telja fósturvísa hjá bændum hér í Árneshreppi.Í Litlu-Ávík. Árnesi 2 og Melum 1 og 2.Ómskoðunin er til að telja fósturvísa í ám til að vita hvaða ær verði tvílembdar eða einlembdar og jafnvel þrílembdar  eða hvað er mikið gelt, á komandi vori í sauðburðinum. Við talninguna  er  notuð ómsjá. Guðbrandur  Þorkelsson bóndi  að Skörðum í Dalasýslu sér um ómskoðunina eða talninguna. Guðbrandur vinnur mikið við þetta í sinni heimasveit og víðar. Ljóst er að með slíkri talningu  er hér á ferðinni tækni sem fyrir fjölmörg fjárbú sýnist vera ákaflega áhugaverð til að nýta. Augljósustu nýtingamöguleikar tengjast skipulagningu fóðrunar á síðari hluta meðgöngutíma ánna auk þess sem að slík vitneskja á víða að geta skapað mikla möguleika til að skipuleggja alla vinnu á sauðburði. Þetta er þrettánda árið í röð sem bændur hér í Árneshreppi láta ómskoða til að telja fósturvísa.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Október »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Úr myndasafni

  • Þakjárn komið á mikið til á bílskúr,22-11-08.
  • Samúel tekur lagið við undirleik Hilmars.
  • Ólafur Thorarensen-Gunnsteinn Gíslason-Njáll Gunnarsson og Guðlaugur Ágústsson.
  • Bílskúrshurð inni.03-12-2008.
  • Grænhóll við Gjögur-05-07-2004.
  • Sement sett í.06-09-08.
Vefumsjón